Persóna og notendasaga

Verkefni í Vefmiðlun.

Persóna og notendasaga

AllirSattir.is

Dæmi um notanda:

  • Jóna Jónsdóttir – Kona
  • 33  ára
  • Einstæð móðir
  • Jóna á 3ja ára son, Siggeir,  með Gunnari Gunnarssyni. Þau voru aldrei í sambúð en Jóna varð ólétt eftir stutt kynni. Samskipti Jónu og Gunnars eru ekki góð og hefur Jóna ekki viljað að Gunnar fái jafnan umgengnisrétt, enda hafi Siggeir alist upp með móður sinni og stjúpföður frá fæðingu en blóðfaðir lítið verið inn í myndinni. Nú vill Gunnar fá að vera með son sinn til skiptis í viku í senn enn Jónu þykir það allt of mikið. 
  • Jóna og Gunnar hafa sæst á að leita eftir aðstoð sáttamiðlara til að leysa úr ágreiningi sínum. 

Notendasaga

Jóna (og Gunnar) fara inn á vefinn til að lesa sér til um hvaða þjónusta er í boði. Þau eru einnig að leita eftir fræðsluefni um sáttamiðlun. Þau vilja svo panta tíma eða óska eftir símaviðtali 

Til hvers er vefurinn?

Vefurinn er fyrir fólk sem þarf á aðstoð sáttamiðlara eða ráðgjafa að halda. T.d. vegna umgengnismála, eineltis eða annars ágreinings. 

Hver eru lykilverkefni vefsins?

  • Miðla upplýsingum um hvaða þjónusta er í boði. 
  • Miðla fræðsluefni sem tengist þjónustu fyrirtækisins. 
  • Auðvelda fólki að panta tíma eða símaráðgjöf. 

Hverjir eru markhóparnir?

Einstaklingar á öllum aldri sem þurfa á aðstoð sáttamiðlara að halda út frá þeirri þjónustu sem fyrirtækið sérhæfir sig í. 

Sigurður Hólm Gunnarsson

Ofangreint verkefni er byggt á hópverkefni í tíma í Grundvallaratriði vefmiðlunar þann 11. september 2020. Verkefnið var þá unnið með Birnu Lárusdóttur og Katrínu Ósk Ingimarsdóttur.