Hvað gerir vefstjóri?

Starf vefstjóra getur verið ansi fjölbreytt, en í meginatriðum snýst starfið um að:

  • Tryggja að vefurinn sé tæknilega í lagi.
    • Hann sé uppfærður eftir þörfum og öruggur.
    • Að til séu regluleg afrit ef eitthvað fer úrskeiðis.
  • Sjá til þess að vefurinn sé aðgengilegur.
    • Veftré skýrt og auðvelt að finna efni.
    • Fylgjast með að innihaldið, efnið sjálft, sé viðeigandi og gagnist notendum vefsins.

Þetta eru grunnatriðin. Góður vefstjóri þarf einnig að hafa geta lagt mat á hönnun, útlit og virkni  vefja og þannig gert tillögur að úrbótum og gert breytingar sjálfur eða þá með aðstoð þriðja aðila.

Mikilvægt er að vefstjóri:

  • Fylgist með því hvernig vefurinn er notaður.
  • Tryggi að vefurinn sé aðgengilegur öllum, svosem sjóndöprum.
  • Sé meðvitaður um hvort tenglar á síðunni virki og hvort vefurinn sé hannaður þannig að auðvelt sé að finna vefinn í gegnum leitarvélar eins og Google.
  • Sjái til þess að mynefni sé aðlagað að vef. Í því felst meðal annars að myndir séu í réttri stærð og ekki of plássfrekar. Hraði vefs er mjög mikilvægur bæði þegar kemur að notendaupplifun og leitarvélarbestun.

Vefstjóri þarf að þekkja helstu umsýslukerfi og helstu tól eins og:

  • WordPress er langvinsælasta umsýslukerfið. En einnig er gott að þekkja inn á önnur kerfi eins og Drupal, Umbraco, Lísu o.s.frv.
  • Google Analytics, Siteimprove og önnur sambærileg forrit til að fylgjast með notkun og virkni.
  • Wave og sambærileg tæki til að skoða notendaupplifun.
  • Helstu myndvinnsluforrit til að vinna og aðlaga myndir. Dæmi: Photoshop, Affinity Photos, TinyPNG.