Vefstjóri þarf að þekkja helstu umsýslukerfi og helstu tól
Í starfi vefstjóra er mikilvægt að kunna á algengustu umsýslukerfi
- WordPress er langvinsælasta umsýslukerfið (e. Content Management System CMS).
- Um 60% þeirra sem nota umsýslukerfi til að hanna og halda utan um vef nota WordPress.
- Einnig er gott að þekkja inn á önnur kerfi eins og Drupal (næst vinsælasta umsýslukerfið, tæp 7% nota það), Umbraco, Lísu o.s.frv.
Gagnleg tól til að skoða aðgengi og virkni
- Google Analytics, Siteimprove og önnur sambærileg forrit til að fylgjast með notkun og virkni.
- Wave og sambærileg tæki til að skoða notendaupplifun.