Ein gagnleg leið til að átta sig á því hvernig fólk leitar að upplýsingum á vefsíðum er að gera svokallaða notendaprófun.
Dæmi um notendaprófun
Vinasamlegast kíkið á forsíðu vefsins og svarið eftirfarandi spurningum. Hvað tók það ykkur langan tíma að finna svörin? Funuduð þið ekki einhverjar upplýsingar? Fannst ykkur auðvelt eða erfitt að finna þessar upplýsingar? Hvernig funduð þið svörin?
Spurningar:
- Hvar er fyrirtækið til húsa og hvert er símanúmerið?
- Hvað kostar að fara í ráðgjöf?
- Hvað heitir framkvæmdastjóri fyrirtækisins og hvert er netfang viðkomandi?
- Pantaðu tíma í ráðgjöf.