Auðveldasta leiðin er yfirleitt valin

Principle of Least Effort

Samkvæmt Principle of Least Effort velur notandi yfirleitt alltaf auðveldustu og fljótlegustu leiðinina til að leita að upplýsingum.

Því er mjög mikilvægt að vefsíður séu skýrar og auðvelt að sjá strax hvar og hvernig hægt er að nálgast nauðsynlegar upplýsingar. Of flóknar vefsíður þar sem áríðandi upplýsingar eru faldar inn í flóknu veftré eru líklegar til að missa viðskipti. Ef notandi þarf að leggja mikið á sig til að finna upplýsingar á  vefsíðunni eru meiri líkur á að hann fari bara eitthvert annað og fái þjónustu annars staðar.

Því skiptir afar miklu máli að vefsíður (og öpp) séu stilhreinar og skipulagðar.