Vefsíður eru þjónustutól ekki skjalageymslur
Það gleymist oft hver tilgangur með vefsíðum fyrirtækja og stofnanna er. Markmiðið er fyrst og fremst að veita gagnlegar upplýsingar svo sem eins og kynna viðburði eða veita einhverja þjónustu.
Mikilvægt er að eigendur vefsetra kortleggi vandlega hvaða upplýsingar notendur þurfa og vilja nálgast og haga efnisinnihaldi út frá því.
Of oft breytast vefsíður í hálfgerða skjalageymslu þar sem nánast allt sem tengist viðkomandi fyrirtæki er geymt.
Niðurstaðan verður þá sú að aðeins lítill partur af vefsíðunni er gagnlegur notendum. Vefurinn verður þá of stór, of flólkin og ónotendavænn.
Þjónustuvefir eru ekki skjalgeymslur fyrir starfsmenn eða þá sem reka síðuna. Ef þörf er fyrir slíka skjalageymslu væri betra að búa til sér innri vef.