Minna er meira! (less is more)
Of algengt er að vefir séu með alltof mikið efni. Oft vegna þess að eigendur telja að allt sem þeir hafa að segja sé svo mikilvægt. Vandinn er sá að of mikið efni truflar notendur og getur valdið því að vefurinn getur orðið mjög óaðgengilegur.
Gerry McGovern, höfundur bókarinnar The Stranger’s Long Neck: How to Deliver What Your Customers Really Want Online, bendir á að oft megi skera efni niður á vefjum um allt að 80%.
McGovern skiptir efni á vefnum í langa hálsinn (long neck), meginmál (body) og langa halann (long tail).
Í langa hálsinum er allt það efni sem skiptir í raun máli fyrir notendur. Í meginmáli er svo ítarefni sem skiptir líka máli en restin tilheyrir langa halanum og er efni sem nánast aldrei er skoðað og er því óþarft og jafnvel til óþurftar.
Aðalatriðin í langa hálsinum
Lykilefni vefsins eiga að tilheyra langa hálsinum. Þar er efnið sem notandinn þarfnast. Í mörgum félögum og fyrirtækjum á alls konar efni til með að safnast saman. Gamlar og úreltar fréttir og greinar eða upplýsingar um vöru og þjónustu sem á ekki lengur við.
Það vill líka oft verða þannig að starfsmenn og stjórnendur telji að allar upplýsingar sem þeir hafa séu mikilvægir og allt eigi að vera tiltækt á vefnum.
Stuttur og hnitmiðaður texti skilar meiru en langlokur
Með því að skoða kjarnastarfsemina, vinna út frá skýrri vefstefnu og með því að nota vefmælingar er hægt að sjá hvaða efni notendur þurfa í raun að finna á vefnum og hverju verið er að leita að reglulega. Það efni á að vera áberandi á vefnum en hitt má einfaldlega skera niður.
Of mikið óþarfa efni gerir alla leit erfiða og dregur úr aðgengi notenda á því sem raunverulega skiptir máli.
Góður vefstjóri getur með vísun í vandaða vefstefnu lagt til og tekið ákvörðun um verulegan niðurskurð á efni vefsins þannig að vefurinn þjóni hlutverki sínu.
Markmið vefs er í flestum tilfellum einfaldlega að miðla efni sem notendur vefsins eru í raun að leita eftir. Auðvitað vilja eigendur vefs koma ákveðnum málum á framfæri en það er ekki nóg til að réttlæta efni á vef. Notandinn verður líka að hafa áhuga á efninu. Ef í ljós kemur að hlutar vefsins eru lítið sem ekkert skoðaðir af notendum á að losa sig við þá hluta eða breyta efninu þannig að það veki áhuga notenda.
Fólk nennir almennt ekki að lesa langlokur á netinu. Hvorki mjög langar greinar eða ítarlegar leiðbeiningar.
Þegar kemur að upplýsingum á vefsíðum þá er mikilvægt að hafa allan texta eins stuttan og hnitmiðaðan og mögulegt er.
Steve Krug, höfundur bókarinnar Don‘t Make Me Think, bendir á að notendur skanni frekar yfir vefi en lesi þá í gegn. Því sé mikilvægt að:
- Nota reglulega skýrar fyrirsagnir
- Hafa stuttar málsgreinar
- Nota lista frekar en langan texta
- Nota lykilorð þegar það á við
- Að forgansröðun efnis sé skýr
Með því að hafa góða vefstefnu og vefstjórn er vel hægt að draga úr of miklum texta á vefjum og gera vefinn þannig aðgengilegri og um leið auka líkurnar á því að fólk heimsæki vefinn aftur.