Aðgengi á vef fjallar skiptir miklu máli
Gott aðgengi fyrir sem flesta skiptir miklu máli á vefsíðum. Þegar minnst er á aðgengismál dettur flestum í hug aðgengi þeirra sem glíma við fötlun, svo sem þeirra sem eru sjóndaprir. Aðgengismál eiga þó við um fleiri.
Vissulega skiptir máli að sjóndaprir geti skoða vefinn. Þúsundir Íslendinga eru það sjóndaprir að þeir eiga erfitt með að lesa óskýran texta. Eins og Sigurjón Ólafsson bendir á í Bókinni um vefinn þá mega fæstir við því að jafnvel 20% notenda geti ekki notað vefinn þeirra.
Það er hægt að bæta aðgengi fyrir sjóndapra með því t.d. að:
- Hafa góða skerpu (contrast) milli texta og bakgrunns.
- Tryggja að skjálesarar skilji og geti túlkað textann með því að hafa textann rétt merktan.
- Hafa fyrirsagnir H1-H6 (Headings) þar sem það á við.
- Hafa alt texta með myndum.
Aðgengi snýst þó ekki bara um aðgengi fyrir fólk með fötlun.
- Það er ákveðin siðferðileg skylda að vefir séu hannaðir með alla i huga
- Í sumum tilfellum er það beinlínis lagaleg skylda að tryggja aðgengi óháð fötlun.
- Til dæmis hjá opinberum stofnunum.
- Gott aðgengi bætir líka upplifun þeirra sem ekki teljast með fötlun.
Ágætt er að nota veftólið WAVE til að skanna vefsíður sjá hvar má bæta aðgengi fyrir sjóndapra.
Í langflestum tilfellum þarf litlar lagfæringar til að tryggja gott aðgengi. Það getur þó verið flókið að laga aðgengi á stórum vef og því mikilvægt að hafa gott aðgengi í huga strax og verið er að smíða nýja vefi.
Slæmt aðgengi dregur verulega úr notagildi vefs og dregur úr líkum á því að notendur, fatlaðir sem ófatlaðir, noti vefinn. Ef markmiðið er að fá sem flesta til að nota vefinn er lykilatriði að tryggja gott aðgengi.
Fólki á að líða vel þegar það heimsækir vefinn þinn.