Að hanna gott leiðartré

Eftirfarandi er gott að hafa í huga þegar leiðartré er hannað:

  1. Góður undirbúningur áður en hafist er handa. T.d. með notendaprófunum og flokkunaræfingum.
  2. Finndu út hvaða síður eru mikilvægastar. Forgangsraðaðu.
  3. Haltu þig við hefðir. Leiðartré efst á síðu er ákjósanlegast.
  4. Gott getur verið að leiðartré sé alltaf sýnilegt. Líka þegar skrunað er niður síðu.
  5. Ekki hafa allt í leiðartré. Aðeins mikilvægustu síðurnar. Annað á heima í fót og jafnvel á undirsíðum.
  6. Ef nauðsynlegt er að hafa mikið í leiðartré notaðu þá fellival sem sést þegar músin fer yfir aðalvalmynd.
  7. Bjóddu upp á leitarglugga ef vefurinn er efnismikill.
  8. Hafðu heitin á efnisflokkum skýr og skiljanleg.
  9. Það á alltaf að vera hægt að fara á forsíðu með því að smella á lógóið (sem ætti að vera efst á síðu).
  10. Gott er að merkja síður þannig að notandi átti sig á því á hvaða síðu hann er hverju sinni.
  11. Ef mögulegt er ætti notandi að geta komist á allar mikilvægar síður af hvaða síðu sem er innan vefsins.