Glansmyndafólkið sem við elskum að hata

Endurskrifið texta - styttið hann og gerið hann vefvænni.

Glansmyndafólkið sem við elskum að hata

Flestir kannast við glansmyndafólkið á netinu. Fólkið sem virðist lifa fullkomnu lífi ef marka má færslur þeirra á samfélagsmiðlum. 

Strákana með magavöðvana, stúlkurnar með öll lækin, duglega fólkið í ræktinni o.s.frv. 

En er líf þeirra í raun eins fullkomið og við höldum?

Hagnast á vanlíðan þinni

Margir hafa áhyggjur af þessu fullkomna fólki og gera það ábyrgt fyrir hinum ýmsu hörmungum. Í fjölmiðlum hafa glansmyndafærslurnar verið kallaðar „eitur“, þær taldar hafa „slæm áhrif á íslensk pör“ og „skapi kvíða“. 

Ég veit að samanburður við óraunhæfar fyrirmyndir valda minnimáttarkennd og fólk með lélegt sjálfstraust er betri neytendur. Það kaupir sér frekar lausnir í formi krema, megrunarlyfja og aðhaldsfatnaðar, svo dæmi séu nefnd. Fyrirtæki græða á lágu sjálfsmati. 

Samfélagsmiðlar gegn þöggun

Samhliða glansmyndunum eru margir að nota samfélagsmiðla til að sýna aðrar hliðar á mannlegri tilvist sem hefur verið hulin skömm eða þögn. Má þar nefna umfjöllun um geðsjúkdóma og Metoo-byltinginuna

Það eru þó ekki allir í aðstöðu til að opna sig um sínar áskoranir af ýmsum ástæðum. Foreldrar geta oft ekki tjáð sig um erfiðleika barna sinna án þess að brjóta trúnað. Stelpa sem var nauðgað getur ekki tjáð sig án þess að eiga það á hættu að vera sökuð um ærumeiðingar o.s.frv. 

Ekki er allt sem sýnist

Sjálf er ég á samfélagsmiðlum og ég spurði fylgjendur mína á Instagram hvað þeim fyndist um glansmyndafólkið. 

Eitt svar vakti athygli mína. Það var svar fra konu, sem á eiginmann sem glímir við alvarlegt krabbamein. Hún sagði mér að líf hennar einkenndist af stöðugri vanlíðan. 

Sálfræðingurinn hennar ráðlagði henni að vega upp á móti vanlíðaninni með því að finna jákvæða fleti tilverunnar og einbeita sér að þeim. Það gerði hún og „bjó til glansmynd“. Þetta gerði hún „ekki til að vekja öðrum öfund“ heldur til að minna sig á það jákvæða við lífið. 

Öll erum við að heyja bardaga sem aðrir vita lítið sem ekkert um. Líka glansmyndafólkið. Hver veit nema einmitt þau þurfi mest á því að halda að tjá sig um góðu stundirnar í sínu lífi.