Eftirfarandi er gott að hafa í huga þegar leiðartré er hannað:
- Góður undirbúningur áður en hafist er handa. T.d. með notendaprófunum og flokkunaræfingum.
- Finndu út hvaða síður eru mikilvægastar. Forgangsraðaðu.
- Haltu þig við hefðir. Leiðartré efst á síðu er ákjósanlegast.
- Gott getur verið að leiðartré sé alltaf sýnilegt. Líka þegar skrunað er niður síðu.
- Ekki hafa allt í leiðartré. Aðeins mikilvægustu síðurnar. Annað á heima í fót og jafnvel á undirsíðum.
- Ef nauðsynlegt er að hafa mikið í leiðartré notaðu þá fellival sem sést þegar músin fer yfir aðalvalmynd.
- Bjóddu upp á leitarglugga ef vefurinn er efnismikill.
- Hafðu heitin á efnisflokkum skýr og skiljanleg.
- Það á alltaf að vera hægt að fara á forsíðu með því að smella á lógóið (sem ætti að vera efst á síðu).
- Gott er að merkja síður þannig að notandi átti sig á því á hvaða síðu hann er hverju sinni.
- Ef mögulegt er ætti notandi að geta komist á allar mikilvægar síður af hvaða síðu sem er innan vefsins.