Starf vefstjóra getur verið ansi fjölbreytt, en í meginatriðum snýst starfið um að:
- Tryggja að vefurinn sé tæknilega í lagi.
- Hann sé uppfærður eftir þörfum og öruggur.
- Að til séu regluleg afrit ef eitthvað fer úrskeiðis.
- Sjá til þess að vefurinn sé aðgengilegur.
- Veftré skýrt og auðvelt að finna efni.
- Fylgjast með að innihaldið, efnið sjálft, sé viðeigandi og gagnist notendum vefsins.
Þetta eru grunnatriðin. Góður vefstjóri þarf einnig að hafa geta lagt mat á hönnun, útlit og virkni vefja og þannig gert tillögur að úrbótum og gert breytingar sjálfur eða þá með aðstoð þriðja aðila.
Mikilvægt er að vefstjóri:
- Fylgist með því hvernig vefurinn er notaður.
- Tryggi að vefurinn sé aðgengilegur öllum, svosem sjóndöprum.
- Sé meðvitaður um hvort tenglar á síðunni virki og hvort vefurinn sé hannaður þannig að auðvelt sé að finna vefinn í gegnum leitarvélar eins og Google.
- Sjái til þess að mynefni sé aðlagað að vef. Í því felst meðal annars að myndir séu í réttri stærð og ekki of plássfrekar. Hraði vefs er mjög mikilvægur bæði þegar kemur að notendaupplifun og leitarvélarbestun.
Vefstjóri þarf að þekkja helstu umsýslukerfi og helstu tól eins og:
- WordPress er langvinsælasta umsýslukerfið. En einnig er gott að þekkja inn á önnur kerfi eins og Drupal, Umbraco, Lísu o.s.frv.
- Google Analytics, Siteimprove og önnur sambærileg forrit til að fylgjast með notkun og virkni.
- Wave og sambærileg tæki til að skoða notendaupplifun.
- Helstu myndvinnsluforrit til að vinna og aðlaga myndir. Dæmi: Photoshop, Affinity Photos, TinyPNG.