Umfjöllun um flokkunaræfingu
Unnið í tíma 23. október 2020
Hvernig gekk æfingin?
Að mestu vel. Tók smá tíma að átta sig á Stormboard. Það var svolítið snúið að flokka alveg frá upphafi með enga yfirflokka. Þetta voru mjög margir miðar og möguleikar því margir.
Sumir hóparnir, þar á meðal minn, áttuðu sig ekki á því að það mætti henda sumum miðunum og því var allt flokkað.
Voru allir sammála eða voru ágreiningar?
Í mínum hóp komumst við fljótlega að sameiginlegri niðurstöðu. Við vorum fljót að finna yfirflokka og svo skiptum við okkur verkum við að raða í þá flokka. Þegar við vorum búin að flokka í fyrstu umferð ræddum við um einstaka vafamál og færðum einhverja miða. Ég hugsa að flokkunin hefði orðið öðruvísi ef við hefðum haft meiri tíma og meiri upplýsingar um vefinn. Ég ákvað að skoða vefinn ekkert áður en ég hóf verkefnið.
Hverjir eru kostir og gallar við að framkvæma flokkunaræfinguna?
Kostirnir eru að geta búið til skiljanlegt leiðarkerfi fyrir síðuna. Fá innsýn inn í það hvernig notandi gæti upplifað síðuna. Útfrá æfingunni þá virðist mér sem að fólk sé í megindráttum sammála um hvernig flokka eigi efni á síður. Það segir okkur að það sé komin ákveðin venja í uppsetningu á vefsíðum og að notendur gerir ráð fyrir ákveðinni uppsetningu.
Hverjir eru kostir og gallar við að framkvæma flokkunaræfinguna rafrænt? Hvaða atriði skipta máli?
Gallarnir eru tæknilegir örðugleikar. Sumir komust ekki inn á spjallið í Teams og þurftu að nota spjallið á Stormboard.
Líklega hægt að búa meira pláss í raunheimum en á netinu. Þ.e. ef hægt er að nota post it miða og stór vinnuborð. Samskipti oft eðlilegri og þægilegri í raunheimum. Þar gefst meiri tími til að spjalla og rökræða um verkefnið.
Ég tel helsta kostinn vera þann að líklega sé hægt að fá fleiri notendur til að taka þátt í flokkun með litlum tilkostnaði. Það var líka gagnlegt að sjá í rauntíma hvernig aðrir voru að flokka á skjánum. Eitthvað sem hefði kannski farið framhjá manni í fjölmennum hópi í stofu.
Hvernig upplifðu þið þennan dag og hver er tilgangurinn?
Skemmtilegt að taka þátt í þessu og gott að hafa þetta svona sjónrænt. Góð leit til að átta sig á því hvað eigi að vera hvar og fá ábendingar frá notendum. Mér finnst líklegt að ég eigi eftir að nýta mér þessa aðferð í framtíðinni við uppsetningu á vef. Er viss um að það sé mjög mikilvægt að fá almenna notendur til að flokka efni á vefsíðum. Gott að sjá hvernig mismunandi þátttakendur sjá vefinn og uppsetningu hans.
Lokaniðurstaðan í Stormboard
