Allirsattir.is – Vefstefna
ALLIR SÁTTIR, vefmidlun.iceweb.host*, býður upp á sáttamiðlun og ráðgjöf í víðu samhengi. Vefstefnan skal afmörkuð út frá þeirri þjónustu sem boðið er upp á.
Dæmi:
- Sáttamiðlun og ráðgjöf fyrir foreldra sem búa ekki saman en vilja ná árangri og sátt þegar kemur að umgengni og uppeldi barna sinna.
- Uppeldisráðgjöf fyrir foreldra og börn.
- Ráðgjöf og eftir atvikum sáttamiðlun til þeirra sem orðið hafa fyrir einelti og/eða áreitni á vinnustað eða skóla.
- Faghandleiðsla fyrir einstaka starfsmenn og hóphandleiðsla fyrir vinnustaði.
- Fræðsla fyrir hópa um sáttamiðlun, einelti og önnur tengd efni.
Hlutverk vefsins er þríþætt:
- Tryggja aðgengilegar upplýsingar um þá þjónustu sem Allir sáttir býður upp á.
- Auðvelda notendum að hafa samband við ráðgjafa, að senda fyrirspurnir og til að panta tíma í ráðgjöf.
- Vettvangur fyrir óregluleg greinaskrif, fréttir og fræðslu sem tengjast þjónustu sem Allir sáttir veitir.
Ímynd vefsins
Mikilvægt er að vefurinn sé hlýlegur og notendavænn. Vefurinn þarf að vera hraðvirkur, veftré skýrt og auðvelt sé að leita að upplýsingum og panta ráðgjöf eða aðra þjónustu.
Vert er að hafa í huga eftirfarandi til að tryggja notendavænan vef:
- Útlit stílhreint.
- Veftré (menu) þannig uppsett að notendur sjá fljótt hvernig þeir komast á réttann stað.
- Notendur geti nálgast efnið sem þeir leita að helst beint á forsíðunni en hámark með 3 músarsmellum.
- Leitarvél kann að vera kostur en þó þarf að hafa í huga að vefurinn er lítill og einfaldur og því hugsanlega óþarfi að vera með leitarvél.
- Meirihluti vefs er statískur (þ.e. upplýsingar um þjónustu í boði sem breytist litið).
- Aðeins bloggsvæði er uppfært af og til með áhugaverðum greinum, fræðslu og fréttum. Síðan er ekki hugsuð sem fréttasíða eða blogg. Ágætt að miða við 1 til 2 færslur í hverjum mánuði.
- Mikilvægt að vefurinn líti vel út og sé aðgengilegur í tölvum, símum, spjaldtölvum og öðrum snjalltækjum.
- Ekki skal gera ráð fyrir því að markhópur vefsins sé með sérstaka tæknþekkingu. Því lögð áhersla á stílhreint, skýrt og aðgengilegt viðmót.
Kynning á vef – hvernig skal auka sýnileika vefsins
- Fagleg leitarvélarbestun (SEO – search engine optimization).
- Notast við viðbótina (plugin) Rank Math SEO á öllum síðum og færslum.
- Regluleg fræðslu og fréttaskrif sem hægt er að deila á samfélagsmiðlum.
- Facebook síða og Twitter aðgangur fyrir Allir sáttir. Öllu efni deilt þar.
- Nota Site Kit for Google viðbót til að virkja Google analytics svo hægt sé að fylgjast með hverjir skoða síðuna og hvað notendur er að skoða. Einnig til að meta árangur auglýsinga.
- Kaupa reglulega auglýsingar á Facebook.
- Bjóða notendum að skrá sig á póstlista og fá þannig reglulega fréttir og nýjar upplýsingar af vefnum.
*http://vefmidlun.iceweb.host/ á meðan verkefnið er unnið. Markmiðið er að nýta síðuna í raunverulegt verkefni. Útlitið sem hannað var er nú notað undir ráðgjafaþjónustuna Allir Sáttir og er að finna á léninu AllirSattir.is.